STERKARI & MEÐVITAÐRI ÞÚ

Hjá JoJo hjálpa ég þér að finna kraftinn þinn – hvort sem það er með lyftingum, föstu eða þrautsegju í gegnum daginn. Þjálfun sem styrkir bæði líkama og huga.

Breytingin byrjar hér!

Hver er JóJó

Um þjálfarann

Jóhanna Jóhannsdóttir er reyndur þjálfari með yfir 30 ára reynslu í líkamsrækt. Hún er menntuð í íþróttakennslu, hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði, með meistaranám í lýðheilsu- og kennslufræði. Hún hefur kennt fjölbreytta tíma, þjálfað einstaklinga af öllum getustigum og keppt í CrossFit og þrekmótum.

Jóhanna stofnaði líkamsræktarstöðina Hressó í Vestmannaeyjum, lyftingarklúbbinn Freyjur og heldur reglulega Föstuáskorun JóJó. Hún hefur sérhæft sig í netnámskeiðum sem hjálpa fólki að styrkja líkama og huga.

Hennar markmið er skýrt – hjálpa fólki að ná árangri og skapa sér heilbrigðan lífsstíl.

Skrá mig hjá JóJó